Um okkur

Mannamót er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vönduðum auglýsinga-, kynningar-, og gjafavörum fyrir fyrirtæki og félagasamtök. 

Við trúum því að vel valdar vörur geti haft afgerandi áhrif – hvort sem þær eru hluti af viðskiptasambandi, ráðstefnu, starfsmannagjöf eða markaðssetningu.

Gjafavara er framlenging af vörumerkinu þínu. Þess vegna vöndum við valið og leggjum áherslu á að allar okkar vörur séu nytsamlegar, fallegar og eftirminnilegar.

Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar að því að finna vörur sem henta þeirra þörfum og standa undir nafni – bæði hvað varðar gæði og ímynd.

Þjónusta okkar byggir á heiðarleika, virðingu og áreiðanleika, hvort heldur sem verk þitt er stórt eða smátt.

Við leggjum áherslu á vönduð fagleg vinnubrögð og okkur er annt um orðspor okkar. Við stöndum við það sem við segjum… ALLTAF!